Október er alþjóðlegur vitundarmánuður um ADHD

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður um ADHD og í ár beinum við sjónum okkar að fullorðnum með ADHD og því hvernig ADHD hefur áhrif á aðra þætti sem fylgja því að vera fullorðinn.

Málþing ADHD samtakanna – 30. október
Á málþinginu „Þegar ADHD fylgir þér“ verður fjallað um áhrif ADHD á uppeldi, atvinnu, fjármál, sambönd og sjálfsmynd. Markmiðið er að varpa ljósi á áskoranir, deila þekkingu og reynslu og miðla lausnum sem nýtast í daglegu lífi.

Málþingið er ætlað fullorðnum með ADHD, aðstandendum og fagfólki. Skráning hér.

Málþingið verður einnig í beinu streymi.

ADHD í beinni – ný Facebook-grúppa
ADHD Í BEINNI tekur við af ADHD í beinni. Við munum streyma fræðslufundum inn á nýju síðuna og hvetjum alla til að sækja um aðgang að henni. Streymið er eingöngu fyrir skuldlaust félagsfólk og því minnum við ykkur á að ganga frá árgjaldinu eða ganga í samtökin áður en þið sækið um aðild. Setja þarf kennitölu þess sem er skráður í samtökin sem svar við spurningu. Nýja grúppan er hér.

Endurskinsmerki
Endurskinsmerkin okkar eru komin í sölu og eru frábær leið til að sýna stuðning við ADHD samtökin, sérstaklega þegar skammdegið gengur í garð. Merkin fást á heimasíðu samtakanna og fulltrúar samtakanna verða einnig við sölu víða um land í október.

Viltu gerast söluaðili? Sendu okkur póst á adhd@adhd.is.

Október er fullur af spennandi viðburðum hjá samtökunum og hvetjum við alla til að taka þátt og auka vitund um ADHD.

5. október Áfram veginn! – vefnámskeið
7. október Velkomin í Kaos klúbbinn – fræðslufundur í stað og streymi

Það getur verið bæði krefjandi og stundum einmanalegt að vera foreldri barns með ADHD. Á þessum fræðslufundi verður fjallað um mikilvægi jafningjastuðnings og jafningjafræðslu fyrir foreldra og aðstandendur barnameð ADHD

7. október Taktu stjórnina – staðnámskeið  
10. október Aðstandendanámskeið – vef og staðnámskeið
Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna um ADHD
13. október

Foreldrahópur – Saman í gegnum ADHD fer aftur af stað í október
ADHD samtökin í samvinnu við Sjónarhól ráðgjafarmiðstöð halda áfram með foreldrahóp fyrir foreldra, forráðafólk og aðstandendur barna með ADHD, Saman í gegnum ADHD.
Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi stýrir hópnum.

17. október ADHD og ég
ADHD og ég, fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stelpur og stráka á aldrinum 10-12 ára.
30. október

Málþing – „Þegar ADHD fylgir þér“
Á málþinginu verður fjallað um þegar ADHD fylgir út frá uppeldi atvinnu, fjármálum, samböndum og sjálfsmynd.

 

Vertu með okkur í október!