Fjarfundar fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára barna með ADHD

Námskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára barna 7 og 14 nóvember.
Námskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára barna 7 og 14 nóvember.

Enn er hægt að skrá sig á fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára barna með ADHD sem verður haldið  21. og 28. nóvember næstkomandi. Námskeiðið verður haldið í gegnum fjarfundarbúnað og ef COVID aðstæður leyfa, í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13 í Reykjavík.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Hægt verður að taka þátt í námskeiðinu í gegnum Facebook, hvar sem er á landinu og ef aðstæður leyfa, vegna COVID verður námskeiðið einnig haldið í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13 í Reykjavík.

DAGSKRÁ: 

Fyrri laugardagur - 21. nóvember 2020:
10:00 -11:30      
Unglingar með ADHD. Stutt yfirlit um einkenni ADHD, hvað breytist á unglingsárunum, mótþrói og erfið hegðun.
11:30 - 12:00     
Matarhlé
12:00 -13:30      
Nám og skólaganga unglinga með ADHD í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla. Áhrif ADHD á námsgetu og helstu erfiðleikar
13:30 - 14:00     
Samantekt og spjall

Seinni laugardagur - 28. nóvember 2020:
10:00 - 11:30     
Uppeldi unglinga - hvað er til ráða? Hvernig samskipti í fjölskyldu geta þróast á neikvæðan hátt og hvernig hægt er að brjóta það upp, reglur og samningar
11:30 - 12:00     
Matarhlé
12:00 - 13:30     
Líðan unglinga með ADHD.. Sjálfsmynd, kvíði og depurð hjá unglingum með ADHD.
13:30 - 14:00     
Samantekt og spjall

Röð fyrirlestra getur breyst, en hver fyrirlestur er í 45 mín. og síðan umræður og fyrirspurnir í 30 mín.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

NÁMSKEIÐSVERÐ:

Verð fyrir einstakling 28.000 kr. SKRÁNING HÉR
Verð fyrir einstakling sem er félagsmaður ADHD 19.000 kr. SKRÁNING HÉR

Verð fyrir tvo einstaklinga 46.000 kr. SKRÁNING HÉR
Verð fyrir tvo einstaklinga þar sem annar aðili er félagsmaður ADHD 28.000 kr. SKRÁNING HÉR