Fjármál og ADHD - Fræðslufundur í kvöld í steymi

Í kvöld fer fram fræðslufundur um ADHD og fjármál. Vegna gríðarlegrar eftirspurnar verður hann einni í streymi fyrir félagsfólk ADHD samtakanna

Fjárhagsleg heilsa er okkur öllum mikilvæg. Valdís Hrönn Berg viðskiptafræðingur og fjárhagsmarkþjálfi, fer yfir helstu áskoranir varðandi ADHD og fjármálayfirsýn. Einnig fjallar hún um hvernig hægt er að setja sér einföld fjárhagsleg markmið sem stuðla að fjárhagslegri vegferð fyrir einstaklinga með ADHD. Hvetjum alla til að mæta sem vilja fræðast um ADHD og fjármál.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð, 108 Reykjavík í kvöld 21. febrúar og hefst klukkan 19:30. Heitt á könnunni. Fundurinn verður eins og fram hefur komið einnig í streymi og getur félagsfólk fengið aðgang að því í ADHD í beinni: https://www.facebook.com/groups/adhdibeinni/

Hægt er að skrá sig á viðburðinn hér til að fá áminningu: https://fb.me/e/3iGfZrPSJ

Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt

Verið velkomin á fræðslufundinn!