FJARNÁM/STAÐNÁM: TÍA - Tómstundir - íþróttir - ADHD

Námskeiðið TÍA - fyrir íþróttaþjálfara
Námskeiðið TÍA - fyrir íþróttaþjálfara
  • NÝTT! FJARNÁM/STAÐNÁM: TÍA - tómstundir, íþróttir og ADHD 
  • Hnitmiðað og fjölbreytt námskeið um ADHD í tveim hlutum fyrir fagfólk sem starfar við íþrótta- og tómstundastarf og aðra aðila sem koma að skipulögðu starfi krakka með ADHD.
  • Námskeiðið er í höndum reynslumikilla fagaðila á sviðinu. Það eru þau Jakob Frímann Þorsteinsson, MA í náms- og kennslufræðum, Vanda Sigurgeirsdóttir MA í uppeldis- og menntunarfræðum og Bóas Valdórsson klínískur sálfræðingur sem hafa veg og vanda að námskeiðinu. Vanda og Jakob starfa við HÍ og hjá KVAN og Bóas starfar sem sálfræðingur við MH.

NÁMSKEIÐSLÝSING:

  • Á námskeiðinu fá þátttakendur hagnýt verkfæri, þjálfast í að nota þau, fræðslu um ADHD og gagnleg ráð. Unnið með reynslumiðuðum hætti með fyrri reynslu þátttakenda og efni námskeiðsins. Á milli þessara tveggja skipta þurfa þátttakendur að gera ráð fyrir tíma til að vinna með efnið í eigin starfi eða þjálfun.
  • Farið er yfir mikilvæga þætti í öllu hópastarfi þar sem einkenni hópaþróunar er tekin fyrir og farið í hvernig stjórnandi hópsins getur nýtt þá krafta sem búa í hverjum hóp með jákvæðum hætti. Rætt er um gagnlega samskiptahætti, markmiðasetningu og mikilvægi þess að leiðbeinendur virkji þátttakendur á jákvæðan og eflandi hátt.
  • Þú sem þjálfari færð aðgengi að praktískum aðferðum við að vinna með krökkum með ADHD frá sérfræðingum á sviðinu.
  • →Við mælum með þessu námskeiði. Það er aldrei að vita nema að þú komir til með að skara fram úr sem íþróttaþjálfari fyrir hópinn í sumar - líka með krökkum með ADHD.
  • STAÐSETNING:

STAÐNÁM: Námskeiðið verður haldið að Háaleitisbraut 13, 4. hæð / FJARNÁM: Í gegnum fjarfundabúnað sem streymt verður í rauntíma.

  • DAGSSETNING OG TÍMI:

Fyrri lota verður haldin þann 19. maí 2021 kl. 10:00-13:00 og seinni lotan þann 2. júní 2021 kl. 10:00-13:00. Innifalið í námskeiðinu er hádegishressing.

  • SKIPULAG:

Námskeiðið er kennt í tveimur lotum 3 klst. í senn. Á milli lota æfa þátttakendur sig í að beita aðferðum námskeiðsins.

  1. tími     19. maí           kl. 10:00-13:00
  2. tími     2. júní            kl. 10:00-13:00
  • MARKMIÐ:

Markmið með námskeiðinu er að auka vitund þjálfara fyrir stöðu og styrkleikum þátttakenda með ADHD og miðla leiðum hvernig hægt er að mæta þörfum þeirra og hópsins.

  • NÁMSKEIÐSVERÐ:

29.000,- fyrir félagsmenn ADHD samtakanna SKRÁNING HÉR

34.000,- fyrir aðra SKRÁNING HÉR

Hægt er að ganga í ADHD samtökin hér.

  • SKRÁNINGU LÍKUR 15. maí 2021
  • Í HNOTSKURN

Hér er um að ræða nýung á vegum ADHD samtakanna þar sem starfsfólk tómstunda- og íþróttahreyfinga fá sérstaka kennslu gagnvart því að vinna með krökkum með ADHD og skyldar raskanir.

  • Notið tækifærið og fáið praktíska nálgun á að vinna með öllum hópunum - líka með krökkum með ADHD - í starfi ykkar í sumar. 

Nánari upplýsingar eru veittar á  skrifstofu ADHD samtakanna í síma 581 1110 eða með því að senda póst á netfangið adhd@adhd.is