Frábært Reykjavíkurmaraþon að baki

Okkar frábæra hlaupafólk
Okkar frábæra hlaupafólk

ADHD Samtökin vilja þakka þeim frábæra hópi hlaupara sem hljóp síðastliðinn laugardag og öllum þeim sem hétu á þau. Þessi súper hlaupahópur sprengdi gamla söfnunarmetið og fyrir það eru samtökin bæði þakklát og djúpt snortin en Reykjavíkurmaraþonið er mikilvægur liður í fjáröflun samtakanna. Enn er hægt að bæta við áheitin í nokkra daga.

Í meira en 30 ár hafa ADHD samtökin unnið markvisst að því að einstaklingar með ADHD og skyldar raskanir og fjölskyldur þeirra, mæti skilningi í samfélaginu, fái stuðning, styrk og þjónustu sem stuðlar að félagslegri aðlögun, auknum möguleikum í námi, leik og starfi og almennt bættum lífsgæðum.

Þjónusta ADHD samtakanna er til reiðu fyrir alla landsmenn en í samtökunum eru hátt í 4000 félagsmenn. Aðildin gildir fyrir alla fjölskyldu viðkomandi, enda eru oft margir í sömu fjölskyldu með ADHD. Hægt er að ganga í samtökin hér.

Líklega glíma allt að 20.000 einstaklingar við ADHD á Íslandi í dag - 8.000 börn og 12.000 fullorðnir, mjög margir sem ekki hafa fengið greiningu eða úrræði við hæfi sem gætu stórbætt lífsgæði og dregið verulega úr ýmsum samfélagslegum kostnaði; brottfalli úr skólum, vímuefnanotkun, einelti, örorku, lyfjanotkun og ýmiskonar heilbrigðisvanda.

ADHD samtökin veita félagsmönnum, öllum almenningi, opinberum stofnunum og fagfólki ýmiskonar ráðgjöf, fræðsluefni og upplýsingar, öllum að kostnaðarlausu og standa jafnframt fyrir öflugu námskeiðahaldi, fræðslufundum og útgáfustarfsemi.