Námskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára barna með ADHD

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára barna með ADHD.
Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára barna með ADHD.

Skráningu er að ljúka á hið sí vinsæla fræðslunámskeið ADHD samtakanna fyrir aðstandendur 13-18 ára barna með ADHD. Námskeiðið verður haldið 9. og 16. nóvember milli 10:00 og 14:00 í Reykjavík, en þátttaka er möguleg í gegnum Facebook um allt land.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Nánari upplýsingar um innihald námskeiðsins, þátttökugjöld og fyrirkomulag má nálgast á heimasíðu ADHD samtakanna, þar sem skráning fer einnig fram.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.