Aðstandendur 6-12 ára barna með ADHD - loka frestur.

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 6-12 ára barna með ADHD hefst á laugardaginn.
Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 6-12 ára barna með ADHD hefst á laugardaginn.

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig. Hið sívinsæla fræðslunámskeið ADHD samtakanna, fyrir aðstandendur 6-12 ára barna með ADHD verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, Reykjavík, næstkomandi laugardag 8. febrúar og laugardaginn 15. febrúar 2020. 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Hægt er að taka þátt hvar sem er á landinu í gegnum fjarfundarbúnað og félagsmenn ADHD samtakanna fá verulegan afslátt af þátttökugjöldum.

DAGSKRÁ: 

Laugardagur I - 8. febrúar 2020
Kl. 10:00–11:15  
Hvað er ADHD?
Kl. 11:15–11:30  
Hlé
Kl. 11:30–12:45  
Samskipti innan fjölskyldna barna með ADHD
Kl. 12:45-13:30   
Matarhlé
Kl. 13:30-14:45   
Félagsfærni barna með ADHD, hvað geta foreldrar gert?

Laugardagur II - 15. febrúar 2020
Kl. 10:00-11:15   
Lyfjameðferð við ADHD
Kl. 11:15-11:30   
Hlé
Kl. 11:30-12:45   
ADHD og nám
Kl. 12:45-13:30   
Matarhlé
Kl. 13:30-14:45   
Líðan barna með ADHD

** ATH. uppröðun fyrirlestra gæti breyst.

Hver fyrirlestur er í 45 mín. og síðan umræður og fyrirspurnir í 30 mín.

Þátttökugjöld eru sem hér segir - hægt er að gerast félagsmaður í ADHD samtökunum hér.

Einstaklingur                      Báðir foreldrar / forráðamenn / aðstandendur

Félagsmenn                       Kr. 19.000                          Kr. 28.000
Aðrir                                   Kr. 28.000                          Kr. 46.000

 SKRÁNING HÉR