Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur unglinga með ADHD - Síðustu forvöð til að skrá sig

Skráningu er að ljúka á fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára unglinga með ADHD sem verður haldið 12. & 19. mars 2022 í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13 í Reykjavík og í gegnum fjarfundarbúnað. Námskeiðið er eitt af elstu námskeiðum samtakanna og jafnframt það námskeið sem best viðbrögð hefur fengið hjá þátttakendum.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Hægt verður að taka þátt í námskeiðinu í gegnum Facebook, hvar sem er á landinu og ef aðstæður leyfa, vegna COVID verður námskeiðið einnig haldið að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík.


Skipulag og dagskrá:

Laugardagurinn 12. mars 2022: 

10:00 – 11:30     Unglingar og ADHD   Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur
11:30 – 12:00     Hlé
12:00 – 13:30     Líðan barna með ADHD Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur
13:50 – 15:00     Uppeldi unglinga með ADHD Þórdís Bragadóttir, sálfræðingur

Laugardagurinn 19. mars:

10:00 – 11:30     Lyf og ADHD Ólafur Guðmundsson, geðlæknir
11:30 – 12:00     Hlé
12:00 – 13:30     ADHD og nám Haukur Örvar Pálmason, sálfræðingur
13:30 – 14:00     Samantekt og spjall

Röð fyrirlestra getur breyst.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

 

NÁMSKEIÐSVERÐ:

Verð fyrir einstakling 32.000 kr. SKRÁNING HÉR
Verð fyrir einstakling sem er félagsmaður ADHD 23.000 kr. SKRÁNING HÉR

Verð fyrir tvo einstaklinga 49.000 kr. SKRÁNING HÉR
Verð fyrir tvo einstaklinga þar sem annar aðili er félagsmaður ADHD 33.000 kr. SKRÁNING HÉR