Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur unglinga með ADHD verður haldið laugardagana 6. & 13. nóvember 2021

Námskeiðið er bæði sent út beint í gegnum fjarfundabúnað sem og haldið í raunheimum. 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað ADHD er og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef nánir aðstandendur geta tekið þátt í námskeiðinu. Þannig verður fjölskylduheildin enn sterkari. 

Námskeiðið verður haldið í húsakynnum ADHD samtakanna í Reykjavík að Háaleitisbraut 13, 4. hæð báða dagana.

Skipulag og dagskrá:

Laugardagurinn 6. nóvember 

10:00 – 11:30          Unglingar og ADHD   Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur

11:30 – 12:00         Hlé

12:00 – 13:30        Líðan barna með ADHD Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur

13:50 – 15:00       Uppeldi unglinga með ADHD Þórdís Bragadóttir, sálfræðingur

Laugardagurinn 13. nóvember 

10:00 – 11:30         Lyf og ADHD Ólafur Guðmundsson barnageðlæknir

11:30 – 12:00          Hlé

12:00 – 13:30         ADHD og nám Haukur Örvar Pálmason

13:30 – 14:00         Samantekt og spjall

Röð fyrirlestra getur breyst, en hver fyrirlestur er í 45 mín.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

  • Röð fyrirlestra getur breyst, en hver fyrirlestur er í 45 mín. og síðan umræður og fyrirspurnir í 30 mín.
  • Hægt er að taka þátt í námskeiðinu í gegnum fjarfundarbúnað - Því er ekkert til fyrirstöðu að taka þátt hvar á landinu sem þú býrð.

NÁMSKEIÐSVERÐ:

  • Verð fyrir einstakling 32.000 kr. SKRÁNING HÉR
  • Verð fyrir einstakling sem er félagsmaður ADHD 23.000 kr. SKRÁNING HÉR
  • Verð fyrir tvo einstaklinga 49.000 kr. SKRÁNING HÉR
  • Verð fyrir tvo einstaklinga þar sem annar aðili er félagsmaður ADHD 33.000 kr. SKRÁNING HÉR