Fundur á Egilsstöðum 11. sept og í Fjarðabyggð 12. sept

ADHD samtökin verða á Egilsstöðum þriðjudaginn 11. september 2012 og í Fjarðabyggð 12. september 2012 með kynningarfund fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra. Þá verður einnig boðið upp á spjallfund fyrir foreldra.

Dagskráin á Egilsstöðum

Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra

Kynningafundur ADHD samtakanna verður haldinn á Egilsstöðum þriðjudaginn 11. september kl. 16:30 í Egilsstaðaskóla í samvinnu við Velferðarráðuneytið. Fundurinn er ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla, sérfræðingum í skóla- og félagsþjónustu og öllum þeim sem starfa með börnum, ungmennum eða fullorðnum með ADHD.

Efni fundar: Hvað er ADHD og hvað gera ADHD samtökin?

Björk Þórarinsdóttir formaður og Elín Hoe Hinriksdóttir varaformaður stjórnar ADHD  samtakanna kynna samtökin.

Dagskrá

  1. Hvað er ADHD? Birtingarmyndir, orsakir og afleiðingar
  2. ADHD á mismunandi aldursskeiðum. Börn, unglingar, fullorðnir.
  3. Greining og meðferðarleiðir.
  4. Skóli, nám og teymisvinna.
  5. Sjónarhóll ráðgjafamiðstöð.
  6. Framtíðarhorfur.
  7. Hvað gera ADHD samtökin og fyrir hvern eru þau?
  8. Helstu verkefni samtakanna. Hlutverk, starfsemi, baráttumál, námskeið og fræðsla
  9. Fyrirspurnir

 Spjallfundur fyrir foreldra

Klukkan 20:00 í Egilsstaðaskóla verður spjallfundur sem Björk og Elín stýra fyrir foreldra barna og ungmenna með ADHD. Hvetjum foreldra barna í leik-, grunn- og framhaldsskóla til að mæta.

 

Dagskráin  í Fjarðabyggð – Reyðarfirði miðvikudaginn 12. september 2012 

Dagskráin í Fjarðabyggð er samskonar á Egilsstöðum.

Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra

Kynningafundur ADHD samtakanna verður haldinn á Fjarðabyggð miðvikudaginn 12. september kl. 16:30 í Grunnskóla Reyðarfjarðar.

 

Spjallfundur fyrir foreldra

Klukkan 20:00 í Grunnskóla Reyðarfjarðar  verður spjallfundur sem Björk og Elín stýra fyrir foreldra barna og ungmenna með ADHD. Hvetjum foreldra barna í leik-, grunn- og framhaldsskóla til að mæta.

 

Fundirnir eru öllum opnir og kosta ekkert