Hið sívinsæla fjarnámskeið áfram veginn!

Netnámskeiðið „Áfram Veginn” hentar vel fyrir þau sem eru með ADHD greiningu sem og þau sem ekki hafa en fengið formlega greiningu.

Á netnámskeiðinu verður einblínt á að fræðast um allar hliðar ADHD því með auknum skilningi á þínu ADHD eykur þú líkurnar á betri stjórn og auknum lífsgæðum í daglegu lífi.

Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundarbúnað ZOOM laugardaganna 24. febrúar og 2. mars frá kl 11:00 til 13:00 báða daganna. Leiðbeinendur námskeiðsins eru : Sigrún Jónsdóttir þroskaþjálfi og ADHD-og einhverfu markþjálfi og Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir ADHD markþjálfi

Megin þemu námskeiðsins eru:

  • Taugaþroskaröskunin ADHD
  • Stýrifærni heilans
  • Greiningarferli ADHD
  • Mikilvægi greiningar og sáttar við greiningu
  • Þróun sjálfsmyndarinnar og fylgiraskanir ADHD
  • Hugræna líkanið
  • Styrkleikar ADHD
  • Bjargráð verða kynnt til sögunnar
  • Kynning á meðferðarúrræðum fyrir ADHD

Skráði þig á námskeiðið hér.

 

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is