Námskeið fyrir fullorðna með ADHD - skráningu er að ljúka!

Taktu stjórnina - námskeið fyrir fullorðna með ADHD.
Taktu stjórnina - námskeið fyrir fullorðna með ADHD.

Skráningu á er að ljúka á Taktu stjórnina - fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna, fyrir fullorðna með ADHD. Skuldlausir félagsmenn ADHD samtakanna og fjölskyldur þeirra njóta sérkjara en fjöldi þátttakenda er tamkarkaður.

Námskeiðið Taktu stjórnina, stendur í 10 klukkustundir - fimm skipti, 2 klukkukstundir í senn og það hefst þriðjudaginn 4. febrúar nk. Námskeiðið hefur notið mikilla vinsælda á liðnum árum og umsagnir þátttakanda hafa verið lofsamlegar:

"Lærði mikið, ekki síst um mig sjálfann".

"Vildi að ég hefði farið á svona námskeið fyrir 20 árum".

"Æðislegt að kynnast svona mörgum sem hafa upplifað svipaða hluti og læra líka af þeim".

"Frábært námskeið".

Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:

  • Skilningur á ADHD og ólík einkenni
  • Algengir fylgikvillar
  • Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
  • Markmiðasetning
  • Félagsleg samskipti almennt
  • Vinna og nám
  • Fjármálastjórn
  • Heimilið
  • Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
  • Heilbrigt líferni

Markmið námskeiðsins

Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðið verður eftirtalda daga:

Þriðjudag 4. febrúar kl. 20:00-22:00
Fimmtudag 6. febrúar kl. 20:00-22:00
Þriðjudag 11. febrúar kl. 20:00-22:00
Fimmtudag 13. febrúar kl. 20:00-22:00
Þriðjudag 18. febrúar kl. 20:00-22:00

Námskeiðið verður í fundarsal ADHD að Háaleitisbraut 13, 4.hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.

NÁMSKEIÐSVERÐ:

34.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna: SKRÁNING HÉR
39.000 kr fyrir aðra: SKRÁNING HÉR

Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is