Námskeið um uppeldi barna með ADHD

Námskeiðið er ætlað foreldrum barna sem hafa einkenni ofvirkni og/eða athyglisbrests samkvæmt formlegri skimun eða fullnaðargreiningu. Efni námskeiðsins hentar best foreldrum barna á aldrinum 5-12 ára sem ekki hafa margar eða flóknar fylgiraskanir.

Skráning er HÉR

Nánari upplýsingar HÉR eða í síma 585 1350.

Markmið

Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á tilveru barna og styðja þá við að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með þessa og tengdar raskanir. Foreldrar eru studdir til að skoða núverandi stöðu, gera áætlanir og framfylgja þeim til að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem algengt er að upp komi. Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma.

Fyrirkomulag

Hvert námskeið er 12 klukkustundir sem skiptist í 6 skipti, 2 klst. í senn. Fyrstu 5 skiptin eru vikulega, þá kemur ein vika án námskeiðstíma og síðasti tíminn er í 7. viku námskeiðs. Í hverjum tíma veita leiðbeinendur fræðslu um ákveðin grundvallaratriði, studd af námskeiðsgögnum. Rík áhersla er lögð á umræður og virka þátttöku foreldra til að tryggja að efnið nýtist hverjum og einum sem best. Í upphafi og við lok námskeiðs eru foreldrar beðnir að fylla út matslista. Milli tíma þarf að vinna heimaverkefni sem rædd eru í næsta skipti og ráðgjöf er gefin um framhaldið. Að auki býðst einstaklingsráðgjöf milli tíma ef þörf krefur. ATH. Hver áfangi námskeiðsins byggir á því sem á undan er gengið og því mikilvægt að gera ráðstafanir til að geta sótt alla tímana. Mælt er með því að báðir foreldrar sæki námskeiðið.

Leiðbeinendur

Leiðbeinendur hverju sinni eru tveir fagaðilar sem eru sérfróðir um ADHD og skyldar raskanir og hafa staðgóða reynslu af vinnu með foreldrum og börnum.

Yfirlit innihalds

  • Tími 1 Einkenni og áhrif ADHD á hegðun barna og samspil þessa við umhverfið. Orsakir óhlýðni og þróun samskipta í fjölskyldum. Grunnatriði atferlismótunar.
  • Tími 2 Uppeldisfærni og bjargráð foreldra, lykilatriði í uppeldi barna með ADHD, að veita æskilegri hegðun athygli og nota ákvæða athygli markvisst til kennslu.
  • Tími 3 Daglegt skipulag, rammi, rútína og reglur. Að gefa skýr fyrirmæli og ýta undir hlýðni, góða hegðun, sjálfstæði og sjálfsaga.
  • Tími 4 Kynning á mismunandi umbunarkerfum; notkun, fyrirkomulag og framkvæmd. Val markhegðunar og umbunar. 
  • Tími 5 Viðurlög við óæskilegri hegðun, mismunandi leiðir. Að taka á hegðun utan heimilis, sjá fyrir mögulega erfiðleika og skipuleggja fyrirbyggjandi aðgerðir og viðbrögð.
  • Tími 6 Skipulag til framtíðar, hvað á að gera ef hegðun barns versnar, þarf einhverju að breytaí núverandi aðgerðum? Niðurstöður matslista, ráðgjöf, endurgjöf og útskrift.

Tími og skráning

Námskeið 1 hefst 10. feb. 2015. Tímar eru vikulega á þriðjudögum til 10 mars, þá er tveggja viknahlé og síðasti tíminn er 24. mars.
Námskeið 2 hefst 26. feb. 2015. Tímar eru vikulega á fimmtudögum til 26. mars , þá er tveggja vikna hlé og síðasti tíminn er 9. apríl.
Námskeið 3 hefst 20. apríl 2015. Tímar eru vikulega á mánudögum til 18. maí , þá er tveggja vikna hlé og síðasti tíminn er 1. júní.

Námskeiðin eru haldin á Þroska-og hegðunarstöð kl. 19:30–21:30. Þátttökugjald er kr. 10.400 fyrir einstaklinga og kr. 14.000 fyrir pör. Skráning og nánari upplýsingar HÉR eða í síma 585 1350.