Orkuboltar og íþróttir – Málþing ADHD samtakanna

Október er alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður en tilgangur hans er að vekja athygli á aðstæðum einstaklinga með ADHD. Í tilefni þess standa ADHD samtökin fyrir málþingi er nefnist „Orkuboltar og íþróttir“ sem haldið er föstudaginn 29. október kl. 13:00-16:00. Málþinginu er ætlað að varpa ljósi á stöðu einstaklinga með ADHD í  íþrótta- og tómstundastarfi. 

Á málþinginu verða Hvatningarverðlaun ADHD samtakanna afhent í fyrsta sinn - einstaklingi sem með mikilsverðum hætti hefur lagt sitt af mörkum til að bæta lífsgæði fólks með ADHD á Íslandi. 

Á málþinginu verða kynntar ýmsar nýjar leiðir sem farnar hafa verið í nálgun og vinnu með börnum með ADHD. Börn með ADHD standa frammi fyrir ýmsum áskorunum þegar litið er til íþróttaiðkunar. Að meðtaka fyrirmæli, vinna í stórum hópum og halda aftur af sér á réttum stöðum eru aðstæður sem einstaklingar með ADHD eiga oft erfitt með og geta verið hamlandi þáttur í íþróttastarfi. Því er mikilvægt að þjálfarar og aðrir sem vinna með börn með ADHD séu færir um að sýna skilning og hafi þekkingu á þeim áskorunum sem börn með ADHD standa frammi fyrir. Bæði íþrótta- og tómstundastarf reynir mikið á félagsfærni barna með ADHD sem oft er af skornum skammti. Málþingið fjallar um þær áskoranir sem börn með ADHD mæta í íþrótta-og tómstundastarfi og hvernig hægt er að koma til móts við þeirra þarfir. Kynnt verður nýtt námskeið ADHD samtakanna er nefnist TÍA- tómstundir, íþróttir og ADHD auk þess sem fjallað verður um nokkrar nýstárlegar þjálfunarleiðir sem gefið hafa góða raun í vinnu með börnum með ADHD.

Hvetjum alla til að taka þátt í málþingi ADHD samtakanna og fræðast um hvernig hægt er vinna með styrkleika og hámarka árangur barna með ADHD í íþróttum- og tómstundum.

Dagskrá Málþingsins

12:30 – 13:00    Móttaka og skráning
13:00 – 13:10    Setning málþings – Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna
13:10 – 13:20    Ávarp - Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
13:20 – 13:30    Hvatningarverðlaun ADHD Samtakanna
13:30 – 14:00    TÍA – tómstundir, íþróttir og ADHD - Bóas Valdórsson sálfræðingur MH
14:00 – 14:30    YAP – Young Ahlete Project- Hreyfiáætlun
Þóra Sigrún Hjaltadóttir leikskólastjóri, Heilsuleikskólinn Skógarás.
Ásta Katrín Helgadóttir íþróttakennari/fagstjóri hreyfingu, Heilsuleikskólinn Skógarás.
14:30 – 14:45    Gunnar Helgason kynnir bókina „ Alexander Daníel Hermann Dawidsson, BANNAÐ AÐ EYÐILEGGJA“
14:45 – 15:00    KAFFIHLÉ
15:00 – 15:30    Ævintýrabúðir og íþróttastarf SLF - Margrét Vala Marteinsdóttir, Styrktarfélagi Lamaðra og fatlaðra
15:30 – 16:00    „Sestu, leggstu, hoppa, húlla“ Að styðjast við hund í vinnu með börnum - Gunnhildur Jakobsdóttir, Æfingastöðinni
16:00                  Samantekt og málþingsslit

Fundarstjóri:     Gunnar Helgason, rithöfundur, leikstjóri og leikari

Málþingið er haldið á Grand Hótel
Hægt er að skrá sig á málþingið hér