Rafíþróttanámskeið ADHD samtakanna og Fylkis

Rafíþróttanámskeið fyrir stelpur og stráka með ADHD
Rafíþróttanámskeið fyrir stelpur og stráka með ADHD

ADHD samtökin og Rafíþróttadeild Fylkis hafa tekið höndum saman og standa fyrir stuttu kynningarnámskeiði í Rafíþróttum fyrir stelpur og stráka  með ADHD á aldrinum 12-17 ára.

Æfingatímabilið er frá 9. janúar til 2. febrúar, átta skipti alls. Æfingar fara fram tvisvar sinnum í viku og eru æfingarnar í 90 mínútur í senn. Á æfingum hjá Rafíþróttadeild Fylkis er lögð áhersla á jákvæða tölvuleikjaspilun, líkamlega og andlega heilsu og liðsheild. Iðkendur hita upp og stunda líkamlegar hreyfingu, læra heilbrigða spilunarhætti og vinna saman sem lið.

Fylkir sér fyrir öllum æfingatækjum, leikjum og aðgöngum en þátttakendum er velkomið að spila aðra leiki eða skrá sig inn á sína aðganga. Hámark eru 10 í hverjum æfingahóp. Tveir hópar verða í boði fyrir stráka og tveir fyrir stelpur. Námskeið strákanna fara fram á mánudögum og miðvikudögum milli 16:30 og 18:00 (hópur 1) og 18:00 og 19:30 (hópur 2). Námskeið stelpnanna fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum milli 16:30 og 18:00 (hópur 1) og 18:00 og 19:30 (hópur 2).

Námskeiðin fara fram í rafíþrótta aðstöðu Fylkis, Norðlingabraut 12. Við hvetjum forráðamenn til þess að vera meðvitaðir um aldursviðmið PEGI. Skráning á æfingar er á ábyrgð forráðamanna og við skráningu er forráðamaður að senda samþykki sitt fyrir því að iðkandinn spili þann leik sem hann hefur verið skráð á æfingar fyrir.

Hér er að finna hlekki á hvern og einn hóp
Hópur 1 Stelpur: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-stelpur-med-adhd-12-17-ara-hopur-1
Hópur 2 Stelpur: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-stelpur-med-adhd-12-17-ara-hopur-2
Hópur 1 Strákar: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-straka-med-adhd-12-17-ara-hopur-1
Hópur 2 Strákar: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-straka-med-adhd-12-17-ara-hopur-2

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt