Síðasti spjallfundur vetrarins miðvikudagskvöldið 14.maí

Við minnum á spjallfundinn fyrir foreldra og forráðamenn annað kvöld, miðvikudag 14. maí. Elín Hrefna Garðarsdóttir geðlæknir leiðir fundinn en yfirskrift hans er "Lyf eða lyfjaleysi". Fundurinn verður að Háaleitisbraut 13 - 2.hæð og hefst klukkan 20:30. Þetta er síðasti spjallfundurinn fyrir sumarhlé. Allir velkomnir í kaffi og notalega stund án endurgjalds.