Skrifstofan fer í sumarfrí frá og með 16. júlí til og með 10. ágúst

Skrifstofa ADHD samtakanna verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með mánudeginum 16. júlí til og með föstudeginum 10. ágúst. Skrifstofan opnar aftur á mánudagsmorgni 13. ágúst, þá er svarað í símann frá kl. 9:00 til 16:00, en skrifstofan er opin á milli kl. 11 og 15 en lokað er í hádeginu nema um annað sé samið.

ADHD samtökin óska félögum og velunnurum þess að eiga gott sumarfrí, sleikja sólina og njóta náttúrunnar :)