Þrengt að afhendingu ADHD lyfja frá 1. júlí 2018

Afgreiðsla Metýlfenídatlyfja eða ADHD lyfja verður takmörkuð frá og með 1. júlí næstkomandi. Breytingin nær til örvandi lyfja, m.a. Concerta, Rítalín og Equasym en þessi lyf verða eftir 1. júlí eingöngu afgreidd ef framvísað er gildu lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands. Notendum lyfjanna er bent á að skírteinin þarf að endurnýja reglulega, en gildistími þeirra er mest átján mánuðir.

Meginbreytingar:

  • Afgreiða má að hámarki til sjúklings allt að 30 daga skammt í senn
  • Næsta afgreiðsla má fara fram í fyrsta lagi 25 dögum eftir síðustu afgreiðslu
  • Óheimilt verður að afhenda ADHD lyf [metýlfenídat] nema fyrir liggi gilt lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands

Markmið breytinganna og efni þeirra
Þann 1. júlí 2018 tekur gildi reglugerð nr. 1266/2017, um lyfjaávísanir og afhendingu lyfja sem birt var á vef Stjórnartíðinda í lok síðasta árs. Á sama tíma tekur gildi reglugerðarbreyting sem snýr meðal annars að þeim sem nota lyf við ADHD (Athyglisbresti með ofvirkni), sem innihalda metýlfenidat. Breytingarnar sem kynntar eru hér að neðan koma fram í breytingarreglugerðinni sem fylgir hér sem viðhengi. Markmiðið er að sporna við misnotkun lyfjanna.

Breytingarnar eiga einkum við um ADHD-lyf sem innihalda metýlfenídat en það eru til dæmis lyfin Concerta, Rítalín/Rítalín Uno, Methylphenidate Sandoz og Equasym.

Engar breytingar verða gerðar á ávísunum eða afgreiðslu lyfja sem innihalda atomoxetin en það eru til dæmis lyf eins og Strattera og Atomeoxetine Sandoz.

Með breytingunum 1. júlí verður afgreiðsla lyfja sem innihalda amfetamín og metýlfenídat takmörkuð við lyfjaskírteini Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), sbr. 5. gr. reglugerðarinnar. Því verður metýlfenídat ekki afgreitt nema viðkomandi einstaklingur sé með gilt lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ). Til þess að fá útgefið lyfjaskírteini þurfa þeir sem orðnir eru 18 ára að snúa sér til geðlæknis eða fá tilvísun hjá lækni til þess að komast að hjá ADHD-teymi Landspítalans. Þetta þýðir að þeir sem ekki hafa fengið formlega greiningu og eru því án lyfjaskírteinis geta ekki fengið afgreidd metýlfenídatlyf frá 1. júlí næstkomandi.

Mikilvægt er fyrir alla að fullvissa sig um að lyfjaskírteini þeirra séu gild, bæði þegar læknir ávísar lyfjum og þegar lyf eru sótt í apótek. Gildistími lyfjaskírteina fyrir umrædd lyf er í mesta lagi 18 mánuðir.

Afgreiðslutakmörkun verður sett á ADHD-lyf sem innihalda metýlfenídat, sbr. 12. gr. reglugerðarinnar. Mest mega apótek eftir 1. júlí 2018 afgreiða lyf til 30 daga í senn og það þurfa að líða a.m.k. 25 dagar milli afgreiðslna. Þetta þýðir t.d. að sá sem tekur út lyf sem hér um ræðir 1. júlí fær þau afgreidd til 30 daga. Næstu afgreiðslu getur hann ekki fengið fyrr en eftir 25. júlí og þá fær hann að hámarki lyf til 30 daga. Lyfjafræðingi er heimilt að víkja frá þessum tímamörkum ef sérstaklega stendur á en fyrir slíkum undanþágum þurfa að vera mjög góðar og gildar ástæður. ÞEtta gæti m.a. átt við um döl erlendis í lengri tíma.

Vakin er athygli á því að frá gildistöku reglugerðarinnar, 1. júlí 2018, gilda ekki lengur lyfjaávísanir lækna frá Evrópska efnahagssvæðinu á umrædd lyf, sbr. 26. gr. Af því leiðir að ávísanir á ADHD-lyf sem innihalda metýlfenídat og gefnar eru út af öðrum en íslenskum læknum verða ekki teknar gildar í apótekum hér á landi. Þeir sem nota erlendar lyfjaávísanir þurfa því að hafa samband við lækni með íslenskt lækningaleyfi.

Hvað þýðir þetta fyrir mig?
Hér að neðan geta þeir sem nota lyf við ADHD séð hvort þeir þurfi á einhvern hátt að bregðast við vegna þeirra breytinga sem reglugerðin felur í sér:

  • Ef þú tekur lyf sem innihalda atomóxetin þá munu þessar breytingar ekki hafa áhrif á þig.
  • Ef þú tekur lyf sem innihalda metýlfenídat, til dæmis Concerta, Rítalín eða annað samheitalyf þarftu að gæta þess að vera með gilt lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands.
  • Eins skaltu hafa í huga að það þarf að nálgast lyfin oftar í apóteki nú en áður.
  • Þú munt aðeins fá afgreidd lyf til 30 daga í senn og getur aðeins sótt nýjan skammt á 25 daga fresti.
 
  • Ef þú berð ábyrgð á barni sem tekur ADHD-lyf sem inniheldur metýlfenídat þarftu að gæta að því að barnið sé með gilt lyfjaskírteini.
  • Eins skaltu hafa í huga að sækja þarf lyfin í apótek oftar en áður, þar sem þessi lyf eru aðeins afgreidd til 30 daga í senn og þú getur aðeins sótt nýjan skammt á 25 daga fresti.
 
  • Ef þú tekur ADHD-lyf sem innihalda metýlfenídat en ert ekki með formlega greiningu frá geðlækni eða ADHD-teymi Landspítalans þarftu annað hvort að hafa samband við geðlækni eða fá tilvísun frá heimilislækni til ADHD-teymis Landspítalans.
  • Ekki er fullnægjandi að vera með greiningu frá öðrum aðila, til dæmis sálfræðingi.
  • Þegar formleg greining liggur fyrir þá er það geðlæknir sem tekur ákvörðun um hvort sótt sé um lyfjaskírteini til Sjúkratrygginga Íslands.
  • Athugaðu að frá og með 1. júlí 2018 munt þú ekki fá afgreidd metýlfenídatlyf nema fyrir liggi lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands.

Ófullnægjandi aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu
ADHD samtökin hafa ítrekað vakið athygli velferðarráðuneytisins og heilbrigðisyfirvalda á lélegu aðgengi sjúklinga að geðheilbrigðisþjónustu. Aðgengið er langt í frá fullnægjandi og með þeim takmörkunum sem reglugerðarbreytingin 1. júlí felur í sér, má búast við að tiltekinn hópur sjuklinga falli „utan kerfis“. Þessi hópur mun væntanlega skila sér af fullum þunga inn á bráðamóttökur sjúkrahúsa með tilheyrandi kostnaðarauka fyrir heilbrigðiskerfið.

Þetta eru meðal annars einstaklingar sem hafa fengið greiningu vegna ADHD hjá sjálfstætt starfandi sálfræðingum og í framhaldinu fengið ávísað lyfjum hjá sínum heimilislækni, án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands [SÍ]. Óvíst er hve stór þessi hópur er en ljóst að lyfjataka er nauðsynleg í langflestum tilvikum.

Fyrir liggur að frá og með 1. júlí stendur þessi hópur frammi fyrir því að fá ekki lyf afgreidd, þar sem greining viðkomandi hefur ekki verið staðfest af geðlækni eða þverfaglegu teymi og því ekki unnt að sækja um lyfjaskírteini til SÍ. ADHD samtökin hafa ítrekað bent á að við þessu þurfi að bregðast en því miður hafa viðtökur verið dræmar.

Efling ADHD teymis Landspítala
Hugsa mætti sér tímabundna aukningu á fjárveitingum til ADHD teymis Landspítala og sambærilegra geðheilsuteyma, þannig að teymin gætu tekið við greiningargögnum viðkomandi sjúklinga, yfirfarið þau og staðfest greiningu eftir atvikum og í framhaldinu sótt um lyfjaskírteini til SÍ fyrir viðkomandi, þannig að sjúklingur fái ávísað lyfjum. Langir biðlistar eru nú hjá ADHD teymi Landspítalans og lætur nærri að bið eftir fyrsta viðtali sé um 30 mánuðir. Að mati ADHD samtakanna er sá biðtími ekki boðlegur og ber að bregðast við nú þegar.

Mikilvægi fyrirhugaðra breytinga á afhendingu ávanabindandi lyfja og megintilgangur er öllum ljós. Að sama skapi er brýnt að tryggja eins og kostur er að breytingin bitni ekki á þeim sem sannanlega þurfa á úrræðunum að halda, heldur fyrst og fremst þeim sem misnota viðkomandi lyf. Þess vegna er mikilvægt að hafa undirbúið mótvægisaðgerðir sem tryggja það eins og kostur er.

 
 

Kynningin til útprentunar

Reglugerð um afhendingu lyfja 01.júlí 2018

Breyting á reglugerð nr. 1266 2017 um lyfjaávísanir og  afhendingu lyfja

Senda póst til ADHD samtakanna