TÍA - nýtt námskeið um Tómstundir, Íþróttir og ADHD

TÍA - Tómstundir, Íþróttir og ADHD - nýtt námskeið ADHD samtakanna.
TÍA - Tómstundir, Íþróttir og ADHD - nýtt námskeið ADHD samtakanna.

TÍA - tómstundir, íþróttir og ADHD, er nýtt námskeið ADHD samtakanna fyrir þjálfara, tómstundafulltrúa og aðra sem koma að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi barna, með sérstakri áherslu á þátttöku barna með ADHD. Skráning er hafin en námskeiðið verður haldið 3. og 23. mars nk.

Námskeiðið er í höndum reynslumikilla fagaðila á sviðinu. Það eru þau Jakob Frímann Þorsteinsson, MA í náms- og kennslufræðum, Vanda Sigurgeirsdóttir MA í uppeldis- og menntunarfræðum og Bóas Valdórsson klínískur sálfræðingur sem hafa veg og vanda að námskeiðinu. Vanda og Jakob starfa við HÍ og hjá KVAN og Bóas starfar sem sálfræðingur við MH.

NÁMSKEIÐSLÝSING:

Á námskeiðinu fá þátttakendur hagnýt verkfæri, þjálfast í að nota þau, fræðslu um ADHD og gagnleg ráð. Unnið er með reynslumiðuðum hætti með fyrri reynslu þátttakenda og efni námskeiðsins. Á milli þessara tveggja lota þurfa þátttakendur að gera ráð fyrir tíma til að vinna með efnið í eigin starfi eða þjálfun.

Farið er yfir mikilvæga þætti í öllu hópastarfi þar sem einkenni hópaþróunar er tekin fyrir og farið í hvernig stjórnandi hópsins getur nýtt þá krafta sem búa í hverjum hóp með jákvæðum hætti. Rætt er um heppilega og gagnlega samskiptahætti, markmiðasetningu og mikilvægi þess að leiðbeinendur virkji þátttakendur á jákvæðan og eflandi hátt.

STAÐSETNING:

Námskeiðið verður haldið að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

DAGSSETNING OG TÍMI:

Fyrri lota verður haldin þann 3. mars og seinni lotan þann 23. mars 2021 kl. 10-13 báða dagana. Innifalið í námskeiðinu er hádegishressing.

SKIPULAG:

Námskeiðið er kennt í tveimur lotum í byrjun og lok mánaðar, 3 klst. í senn. Á milli lota æfa þátttakendur sig í að beita aðferðum námskeiðsins.

  1. tími     3. mars            kl. 10:00-13:00
  2. tími     23. mars          kl. 10:00-13:00

MARKMIÐ:

Markmið með námskeiðinu er að auka vitund þjálfara fyrir stöðu og styrkleikum þátttakenda með ADHD og miðla leiðum hvernig hægt er að mæta þörfum þeirra og hópsins.

NÁMSKEIÐSVERÐ:

29.000,- fyrir félagsmenn ADHD samtakanna SKRÁNING HÉR

34.000,- fyrir aðra SKRÁNING HÉR

Innifalið í námskeiðinu er hádegishressing. Hægt er að ganga í ADHD samtökin hér

SKRÁNINGU LÍKUR

1. mars 2021

ATH! Takmarkað sætaframboð. Fyrstir koma fyrstir fá.

Í HNOTSKURN

Hér er um að ræða nýung á vegum ADHD samtakanna þar sem starfsfólk tómstunda- og íþróttahreyfinga fá sérstaka kennslu gagnvart því að vinna með krökkum með ADHD og skyldar raskanir.

Nánari upplýsingar eru veittar á  skrifstofu ADHD samtakanna í síma 581 1110 eða með því að senda póst á netfangið adhd@adhd.is