Loka áminning um námskeið í Tölvuleikjagerð og Minecraft 12 til 21 júní

Síðustu forvöð að skrá sig á námskeið í Tölvuleikjagerð og Minecraft fyrir börn 7-10 ára

ADHD samtökin í samstarfi við Skema í HR bjóða upp á námskeið í Tölvuleikjagerð og Minecraft í sumar. Skema stendur fyrir fjölbreyttum tækninámskeiðum og vinnur auk þess að því markmiði að kennsla í forritun verði í boði í grunn- og framhaldsskólum landsins. Þetta er fyrsta námskeiðið sem ADHD samtökin og Skema bjóða uppá saman. Námskeiðið er tvískipt. Annars vegar verður tölvuleikjagerð í Scratch og hins vegar sköpun í Minecraft. 

Þátttakendur fá að kynnast Scratch forritunarumhverfinu og læra að skapa, forrita og hanna sína eigin tölvuleiki. Scratch er sérsniðið að byrjendum í forritun en þar er notast við sjónrænt forritunarmál sem byggir á litríkum skipanakubbum. Þátttakendur öðlast grunnþekkingu á forritun, stafrænni hönnun og framkvæmd eigin hugmynda.

Minecraft er vinsæll tölvuleikur þar sem eina takmarkið er eigið hugmyndaflug. Þátttakendur fá að læra grunninn í leiknum, ýmis brögð og brellur og vinna saman við að byggja upp samfélag með öðrum. Þátttakendur spila í sama heimi og geta unnið saman við verkefnavinnu. 

Námskeiðið verður haldið á Háaleitisbraut 13, 4.hæð í húsnæði ADHD samtakanna. Kennsla fer fram í tvær vikur frá 12. júní til 21. júní, á mánudögum og miðvikudögum frá kl.10:00-12:30.  Rétt er að taka fram að allir þjálfarar Skemu fara í gegnum ADHD fræðslu hjá samtökunum í þeim tilgangi að mæta betur þörfum þátttakenda. Létt hressing í boði.

Áhersla verður lögð á að læra nýja hluti, hreyfingu, sköpun, teymisvinnu og fjör! 

Nánari upplýsingar og skráning Hér: https://www.adhd.is/is/namskeid/tolvuleikjagerd-og-minecraft-skema-hr-og-adhd-samtokin