ADHD Austurland - fræðslu- og stofnfundur.

ADHD samtökin boða til opins fræðslu- og stofnfundar um ADHD og hvernig bæta megi lífsgæði fólks með ADHD á Austurlandi. Með fundinum hefjum við formlegt starf ADHD Austurland.
 
Formaður ADHD samtakanna, Elín H Hinriksdóttir heldur framsögu og María Hjálmarsdóttir kynnir fyrirhugað starf ADHD Austurland. Í framhaldi verður spjallað um allt það sem fundargestir vilja helst, varðandi ADHD og starfið framundan.
 
Samkoman fer fram á Hótel Héraði, Egilsstöðum og hefst kl 20:00 - skráning á Facebook viðburði ADHD Austurland
 
Öll velkomin, fólk með ADHD, aðstandendur, kennarar, þjálfarar og aðrir þeir sem vinna með börnum eða fullorðnum með ADHD eða vilja fræðast um ADHD. Enginn aðgangseyrir og kaffi á könnunni.