ADHD, svefn og streita - fræðslufundur á Facebook

Á meðan samkomubann stjórnvalda er í gildi, munu ADHD samtökin standa fyrir vikulegum opnum fræðslufundum um ýmis málefni tengd ADHD. Fræðslufundunum verður streymt beint á Facebook síður samtakanna - ADHD samtökin, ADHD Eyjar og ADHD Norðurland.

Fræðslufundirnir sem þegar hafa verið ákveðnir eru þessir - sjá nánar á Facebook viðburði fræðslufundanna:

29. apríl kl. 19:30 - ADHD, svefn og streita.
Umsjón: Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og stjórnarkona í ADHD samtökunum.

6. maí kl. 19:30 - Taktu stjórnina - ADHD markþjálfun.

Umsjón: Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og stjórnarkona í ADHD samtökunum.


13. maí kl. 19:30 - Náin sambönd og ADHD.
Umsjón: Elín Hinriksdótir, formaður ADHD samtakanna.


Fræðslufundirnir verða opnir öllum opnir en þeir sem vilja ganga í ADHD samtökin og styrkja þannig starfsemina geta gert það hér:
https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt

Þá vekjum við athygli á vefverslun samtakanna, en þar er m.a. hægt að fá margskonar fikt-, leik- og þroskandi vörur og fjölda bóka sem nýst geta vel við nám og daglegt líf með ADHD. Félagsmenn ADHD samtakanna njóta sérkjara á ýmsum vöruflokkum. Vefverslun ADHD samtakanna.