Áfram stelpur II

Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2,5 klukkukstundir í senn. Næsta námskeið verður 12. apríl til 3. maí 2023 sjá nánar hér að neðan:

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær! 

Markmið námskeiðs:

Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd.  Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Námskeiðið verður í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.

Fyrir þær sem ekki komast á staðinn bendum við á námskeiðið ÁFRAM VEGINN sem er fjarnámskeið fyrir fullorðna með ADHD sem haldið verður í nóvember.