Fræðslufundur Suðurland - Sjónrænt skipulag

Er erfitt að fá barnið til að fylgja fyrirmælum og skapa ramma og rútínu? Börn með ADHD eiga iðulega erfitt með að skilja og fylgja eftir munnlegum fyrirmælum en hafa þess í stað sjónræna styrkleika. Þegar þjálfa á daglegar venjur og fá barnið til að fylgja þeim getur sjónrænt skipulag komið að góðum notum.
 
Katrín Ruth Þorgeirsdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi og hegðunarráðgjafi fer yfir nokkrar aðferðir og leiðir sem hægt er að nota til að kenna, þjálfa og styðja við daglegar rútínur.
Fundurinn verður haldinn þann 22. mars næstkomandi og hefst klukkan 20:00. Staðsetning verður tilkynnt þegar nær dregur.


Hægt er að skrá sig á viðburðinn hér til að fá áminningu um hann: https://fb.me/e/y1tpsLOY

Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt

Verið velkomin á fræðslufundinn!