Súper Krakkar - Stelpur 9-12 ára September

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Sjálfstyrk og er ætlað súlkum 9 -12 ára með ADHD. Á námskeiðinu læra stelpurnar leiðir til þess að efla sjálfsmynd, félagsfærni og tilfinningastjórnun. Unnið er út frá aðferðum hugrænni atferlismeðferðar (HAM), díalektískrar atferlismeðferðar (DAM), núvitundar og yoga.

Soffía Elín Sigurðardóttir sálfræðingur Sjálfstyrks kennir námskeiðið og er allt efni byggt á gagnreyndum sálfræðimeðferðum. Viðgjöf er veitt til foreldra á meðan námskeiði stendur. Sjálfsmatskvarðar eru lagðir fyrir þátttakendur og viðgjöf veitt til foreldra í lok námskeiðs. Soffía hefur, ásamt kollega sínum Paola Cardenas, nýverið gefið út bækurnar Súper Vitrænn og Súper Viðstödd og eru það fyrstu barnabækurnar í seríunni um Súperstyrkina. Bækurnar má kaupa í vefverslun ADHD samtakanna.

Námskeiðið verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.