Súper strákar

Sjálfstyrkingarnámskeið Sjálfstyrks og ADHD samtakanna - Súper krakkar 9-12 ára.  Ætlað börnum sem gengur ágætlega að tileinka sér efni í 8 -10 þátttakenda hóp.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!

Markmið námskeiðs:
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Sjálfstyrk og er ætlað drengjum 9 -12 ára með ADHD. Á námskeiðinu læra strákarnir leiðir til þess að efla sjálfsmynd, félagsfærni og tilfinningastjórnun. Unnið er út frá aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM), díalektískrar atferlismeðferðar (DAM), núvitundar og yoga. 

Soffía Elín Sigurðardóttir sálfræðingur Sjálfstyrks kennir námskeiðið og er allt efni byggt á gagnreyndum sálfræðimeðferðum. Viðgjöf er veitt til foreldra á meðan námskeiði stendur. Soffía hefur, ásamt kollega sínum Paola Cardenas, nýverið gefið út bækurnar Súper Vitrænn og Súper Viðstödd og eru það fyrstu barnabækurnar í seríunni um Súperstyrkina. Bækurnar má kaupa í vefverslun ADHD samtakanna.

Námskeiðið verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.