Tölvuleikjagerð og Minecraft - í samvinnu við Skemu börn 7-10 ára

Skema í HR og ADHD samtökin halda námskeið í Tölvuleikjagerð og Minecraft fyrir börn 7-10 ára.

Námskeiðið er tvískipt. Annars vegar verður tölvuleikjagerð í Scratch og hins vegar sköpun í Minecraft.

Þátttakendur fá að kynnast Scratch forritunarumhverfinu og læra að skapa, forrita og hanna sína eigin tölvuleiki. Scratch er sérsniðið að byrjendum í forritun en þar er notast við sjónrænt forritunarmál sem byggir á litríkum skipanakubbum. Þátttakendur öðlast grunnþekkingu á forritun, stafrænni hönnun og framkvæmd eigin hugmynda.

Minecraft er vinsæll tölvuleikur þar sem eina takmarkið er eigið hugmyndaflug. Þátttakendur fá að læra grunninn í leiknum, ýmis brögð og brellur og vinna saman við að byggja upp samfélag með öðrum. Þátttakendur spila í sama heimi og geta unnið saman við verkefnavinnu. 

Rétt er að taka fram að allir þjálfarar Skemu fara í gegnum ADHD fræðslu hjá samtökunum í þeim tilgangi að mæta betur þörfum þátttakenda.

Námskeiðið verður haldið á Háaleitisbraut 13, 4.hæð í húsnæði ADHD samtakanna. Kennt er á mánudögum og miðvikudögum frá kl.10:00-12:30.

Áhersla verður lögð á að læra nýja hluti, hreyfingu, sköpun, teymisvinnu og fjör!    

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is