Taktu stjórnina - Fræðslunámskeið fyrir fullorðna
31. október kl. 17:00-19:30
Háleitisbraut 13, 4.hæð
-
Skráning er hafin á hið sívinsæla fræðslunámskeið ADHD samtakanna - Taktu stjórnina! sem verður haldið á þriðjudögum 31. október., 7., 14., og 21. nóvember (sjá nánar töflu hér fyrir neðan) Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2 og 1/2 klukkukstund í senn frá kl. 17:00 - 19:30 alla dagana.
- Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!
Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:
- Skilningur á ADHD og ólík einkenni
- Algengir fylgikvillar
- Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
- Markmiðasetning
- Félagsleg samskipti almennt
- Vinna og nám
- Fjármálastjórn
- Heimilið
- Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
- Heilbrigt líferni
Markmið námskeiðsins:
- Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.
Námskeiðið verður að haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi.
Skipulag:
1. tími |
31. október |
þriðjudagur |
kl. 17:00 - 19:30 |
2. tími |
7. nóvember |
þriðjudagur |
kl. 17:00 - 19:30 |
3. tími |
14. nóvember |
þriðjudagur |
kl. 17:00 - 19:30 |
4. tími |
21. nóvember |
þriðjudagur |
kl. 17:00 - 19:30 |
Námskeiðsverð:
39.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna
44.000 kr fyrir aðra
Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd
Fyrir frekari upplýsingar og til að skrá sig smellið hér
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is