ADHD og fjármál - félagsfólk

ADHD og fjármál - Á námskeiðinu verður farið yfir helstu áskoranir varðandi ADHD og fjármála yfirsýn. Við förum yfir hvernig við getum byggt upp betra samband við fjármálin okkar, vinnum með hvatvísi og segjum bless við skömmina sem fylgir oft óreiðu í fjármálum. Við lærum mismunandi aðferðir til að setja okkur fjárhagsleg markmið og standa við þau og hvar við getum sparað. Við förum yfir hvernig er hægt að halda heimilisbókhald á einfaldan og skemmtilegan hátt og hvernig við búum okkur til ADHD vænar fjármála rútínur. Við einbeitum okkur betur að því að byggja upp jákvæðar tilfinningar fyrir fjármálin okkar og hvað það kostar okkur í raun og veru að lifa. Þú færð verkfæri eftir námskeiðið til þess að vera betur tengd við peningana þína til að stjórna þeim í stað þess að þeir stjórni þér.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Valdís Hrönn Berg, fjárhagsmarkþjálfi.

Námskeiðið fer fram í gegnum Zoom, laugardagana 22. og 29 apríl næstkomandi milli 10:00 og 12:00 báða dagana.

NÁMSKEIÐSVERÐ:
29.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna.
34.000 kr. fyrir aðra.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is

Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu í síma 581 1110 eða á netfangið adhd@adhd.is

Greiðslumáti
Skilmálar

Ef ég eða einstaklingur á mínum vegum sem er skráður á námskeið en mætir ekki og/eða lætur ekki vita af forföllum með að minnsta kosti 48. klst fyrirvara er greitt fullt verð fyrir námskeiðið.

Ennfremur samþykki ég að miðla ekki glærum eða öðru efni sem ég fæ í hendur á námskeiðinu.

Verð: 29.000 ISK