ADHD fjölskyldan - opinn spjallfundur í Reykjavík.

ADHD fjölskyldan - opinn spjallfundur i Reykjavík.
ADHD fjölskyldan - opinn spjallfundur i Reykjavík.

ADHD fjölskyldan. ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um fjölskyldulíf fólks með ADHD miðvikudaginn 19. febrúar nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV. hæð og er ætlaður aðstandendum barna með ADHD, fólki með ADHD og öllu áhugafólki um betra líf með ADHD.

Að vera með ADHD og eiga börn með ADHD sem þurfa ramma og skipulag getur reynst erfitt. Jóna Kristín Gunnarsdóttir, kennari og stjórnarkona í ADHD samtökunum, fer yfir þær aðferðir sem hún hefur notað og nýst hafa bæði fyrir hana og börnin hennar hvað varðar skóla, vinnu og heimilið.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bæklinga samtakannabækur um ADHD og annað fræðsluefni.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD samtakanna eru yfirleitt fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði og má sjá dagskrána framundan hér: Spjallfundir ADHD samtakanna.

Ef þú vilt ganga í ADHD samtökin, er hægt að gera það hér. Ganga í ADHD samtökin.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.