Spjallfundur á Akureyri fellur niður vegna ófærðar.

Opinn spjallfundur um undirbúning jóla og ADHD.
Opinn spjallfundur um undirbúning jóla og ADHD.

Vegna ófærðar, verður þvi miður að fella niður fyrirhugaðann spjallfund um ADHD og jólin, sem átti að vera á Akureyri á morgun, fimmtudaginn 12. desember kl. 20:00. Næsti spjallfundur á Akureyri verður á nýju ári.

ADHD og jólin. ADHD Norðurland stendur fyrir opnum spjallfundi á Akureyri, um undirbúning jóla og ADHD, fimmtudaginn 12. desember næstkomandi. Fundurinn fer fram í húsnæði Grófarinnar, Hafnarstræti 95 og hefst kl. 20:00 og er ætlaður fólki með ADHD og foreldrum, forráðamönnum og nánum aðstandendum barna og ungmenna með ADHD og öllum þeim sem lifa og starfa með fólki með ADHD.

Á spjallfundinum verður fjallað um undirbúning jóla og ADHD. Elín H. Hinriksdóttir, formaður ADHD samtakanna, fjallar um, hvernig ýmislegt í jólaundirbúningnum, spenningnum sem fylgir jólunum og breyttri rútínu fjölskyldunnar í jólafríinu, getur valdið streitu og erfiðleikum hjá börnum og fólki með ADHD og gefur góð ráð um hvernig hægt er að bregðast við. Jólin eru enda og eiga að vera, hátíð gleðinnar hjá fólki með ADHD ekki síður en öðrum. 

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bæklinga samtakanna, bækur um ADHD og annað fræðsluefni.

Spjallfundir ADHD Norðurland eru haldnir í Grófinni, Hafnarstræti 95, 4. hæð, fyrir ofan Apótekarann í göngugötunni. Fundirnir eru opnir öllum, félögum í ADHD samtökunum, einstaklingum með ADHD, aðstandendum og öðrum áhugasömum um ADHD og skildar raskanir. Hægt er að skrá sig á Facebook viðburð fundanna, þar sem fram koma fyrirhugaðir fundir á Akureyri og fundarefni, en áætlað er einn spjallfundur verði haldinn í hverjum mánuði - skráning hér. 

Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi slóð - ganga í ADHD samtökin.

Enginn aðgangseyrir er að fundunum og er ávallt heitt á könnunni.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!