ADHD og lyf - Spjallfundur í kvöld kl. 20:30

Á fundinum verður farið yfir virkni helstu lyfja sem notuð eru vegna ADHD, rætt um mögulegar aukaverkanir og reynt að svara helstu spurningum sem brenna á vörum fundargesta. Umsjón með fundinum hefur Vilhjálmur Hjálmarsson,formaður ADHD samtakanna ásamt Elín Hrefnu Garðarsdóttur, geðlækni.

Fundurinn er öllum opinn á meðan húsúm leyfir og fer hann fram í húsakynnum ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð

Erindinu verður einnig streymt á lokað svæði skuldlausra félagsmanna ADHD samtakanna á Facebook, ADHD Í BEINNI

Mikil umræða hefur verið um notkun lyfja og ADHD á liðnum misserum og víða má greina fordóma og vanþekkingu um þessi mál. 

Mætum og bjóðum vinum - byggjum upp öflugt ADHD samfélag.

Skráðu þig á Facebook viðburð spjallfundanna og fáðu áminningu

Yfirlit yfir spjallfundi í Reykjavík má sjá hér

Hægt er að ganga í ADHD samtökin hér: Gerast félagsmaður. 

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.