ADHD og lyfjamálin - Spjallfundur í Reykjavík /streymt beint

Sjallfundur um ADHD og lyf í Reykjavík
Sjallfundur um ADHD og lyf í Reykjavík
  • ADHD samtökin halda opinn spjallfund í Reykjavík um ADHD og lyf, miðvikudaginn 17. mars kl. 20:30.
  • Á fundinum verður farið yfir virkni helstu lyfja sem notuð eru vegna ADHD, rætt um mögulegar aukaverkanir og reynt að svara helstu spurningum sem brenna á vörum fundargesta. Umsjón með fundinum hefur Vilhjálmur Hjálmarsson, varaformaður ADHD samtakanna.
  • Fundurinn er öllum opinn á meðan húsúm leyfir og fer hann fram í húsakynnum ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð
  • Erindinu verður einnig streymt á lokað svæði skuldlausra félagsmanna ADHD samtakanna á Facebook, ADHD í beinni.
  • Mikil umræða hefur verið um notkun lyfja og ADHD á liðnum misserum og víða má greina fordóma og vanþekkingu um þessi mál. 
  • Mætum og bjóðum vinum - byggjum upp öflugt ADHD samfélag.
  • Skráðu þig á Facebook viðburð spjallfundanna og fáðu áminningu
  • Yfirlit yfir spjallfundi í Reykjavík má sjá hér
  • Við bendum líka á upptökur af nokkrum fræðslufundum ADHD samtakanna um ýmis ADHD málefn sem nálgast má hér.
  • Hægt er að ganga í ADHD samtökin hér: Gerast félagsmaður. 

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.