Spjallfundur felllur niður - ADHD og nám

Opinn spjallfundur í Reykjavík um ADHD og nám.
Opinn spjallfundur í Reykjavík um ADHD og nám.

Spjallfundur um ADHD og nám fellur niður vegna veikinda.

 

ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund um ADHD og nám,  miðvikudaginn 3. febrúar nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - 4. hæð og er ætlaður fullorðnum með ADHD, foreldrum barna með ADHD og öllu áhugafólki um betra líf með ADHD. 

Vegna COVID faraldursins verður sérstaklega gætt að sóttvörnum og fjöldatakmörkunum.

Nú eru skólarnir komnir á fullt og eftir allt covid fárið er afar mikilvægt að vel takist til. Lykillinn að góðum árangri gott skipulag og öguð vinnubrögð strax frá fyrsta degi, ekki síst hjá þeim sem þurfa að taka heima námið fastari tökum en ella. Á fundinum mun Jóna Kristín Gunnarsdóttir, kennari og stjórnarkona í ADHD samtökunum fara yfir helstu áskoranir varðandi heimanám og skólastarf og benda á hagnýt ráð sem virka og leiða umræður.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bæklinga samtakannabækur um ADHD og annað fræðsluefni. Við vekjum einnig athygli á upptökum af fræðslufundum frá vorinu 2020 sem nálgast nálgast hér og hlaðvarpi ADHD samtakanna, Lífið með ADHD.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD samtakanna eru yfirleitt fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði og má sjá dagskrána framundan hér: Spjallfundir ADHD samtakanna.

Ef þú vilt ganga í ADHD samtökin, er hægt að gera það hér. Ganga í ADHD samtökin.

Hlökkum til að sjá ykkur!