ADHD og nám - Spjallfundur á Akureyri

28. janúar kl. 16:30-17:45 Grófinni, Hafnarstræti 95, 4. hæð

ADHD og heimanám
Nú eru skólarnir komnir á fullt og eftir allt covid fárið er afar mikilvægt að vel takist til. Lykillinn að góðum árangri gott skipulag og öguð vinnubrögð strax frá fyrsta degi, ekki síst hjá þeim sem þurfa að taka heima námið fastari tökum en ella. Á fundinum mun Jóna Kristín Gunnarsdóttir, kennari og stjórnarkona í ADHD samtökunum fara yfir helstu áskoranir varðandi heimanám og skólastarf og benda á hagnýt ráð sem virka og leiða umræður.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bæklinga samtakannabækur um ADHD og annað fræðsluefni.

Spjallfundir ADHD Norðurland eru haldnir í Grófinni, Hafnarstræti 95, 4. hæð, fyrir ofan Apótekarann í göngugötunni. Fundirnir eru opnir öllum, félögum í ADHD samtökunum, einstaklingum með ADHD, aðstandendum og öðrum áhugasömum um ADHD og skildar raskanir. Hægt er að skrá sig á Facebook viðburð fundanna, þar sem fram koma fyrirhugaðir fundir á Akureyri og fundarefni, en áætlað er einn spjallfundur verði haldinn í hverjum mánuði. Skráðu þig á Facebook viðburð spjallfundanna - fáðu áminningu.

Við bendum líka á upptökur af nokkrum fræðslufundum ADHD samtakanna um ýmis ADHD málefn sem nálgast má hér.

Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi slóð - ganga í ADHD samtökin.

Enginn aðgangseyrir er að fundunum og er ávallt heitt á könnunni.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!