ADHD og systkini - opinn spjallfundur á Akureyri.

Opinn spjallfundur um systkini og ADHD á Akureyri.
Opinn spjallfundur um systkini og ADHD á Akureyri.

ADHD og systkyni. ADHD Norðurland stendur fyrir opnum spjallfundi á Akureyri, um ADHD og systkini, fimmtudaginn 14. nóvember næstkomandi. Fundurinn fer fram í húsnæði Grófarinnar, Hafnarstræti 95 og hefst kl. 20:00.

Systkini barna með ADHD upplifa ýmsar áskoranir í samskiptum sínum við barnið með ADHD og geta upplifað sig sem fórnarlömb stríðni, árásargirni og afskiptaleysis. Oft á tíðum fer athyglin annað en á þau og kröfurnar geta orðið miklar. Allt fjölskyldulífið getur litast af erfiðum samskiptum milli systkina og þegar ADHD bætist við það flókna mynstur, verða verkefnin meira krefjandi. Á fundinum mun Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og stjórnarkona í ADHD samtökunum fara yfir helstu áskoranir ADHD fyrir fjölskyldulífið með tilliti til systkina, benda á hagnýt ráð sem virka og leiða umræður.

Fundurinn ætlaður fólki með ADHD og foreldrum, forráðamönnum og nánum aðstandendum barna og ungmenna með ADHD og öllum þeim sem lifa og starfa með fólki með ADHD.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bæklinga samtakanna, bækur um ADHD og annað fræðsluefni.

Spjallfundir ADHD Norðurland eru haldnir í Grófinni, Hafnarstræti 95., 4. hæð, fyrir ofan Apótekarann í göngugötunni. Fundirnir eru opnir öllum, félögum í ADHD samtökunum, einstaklingum með ADHD, aðstandendum og öðrum áhugasömum um ADHD og skildar raskanir. Hægt er að skrá sig á Facebook viðburð fundanna, þar sem fram koma fyrirhugaðir fundir á Akureyri og fundarefni, en áætlað er einn spjallfundur verði haldinn í hverjum mánuði - skráning hér. 

Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi slóð - ganga í ADHD samtökin.

Enginn aðgangseyrir er að fundunum og er ávallt heitt á könnunni.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!