FULLBÓKAÐ! skráð á biðlista. AUKANÁMSKEIÐ - TAKTU STJÓRNINA - námskeið fyrir fullorðna - öll kyn.

  • FULLBÓKAÐ ER Á NÁMSKEIÐIÐ! Tökum skráningar á biðlista.
  • AUKANÁMSKEIÐ! á námskeiðið TAKTU STJÓRNINA sem er fyrir öll kyn og hefst í maí næstkomandi.
  • Skráning er hafin á hið sívinsæla færninámskeið ADHD samtakanna - Taktu stjórnina! sem verður haldið þriðjudagana 18. og 25. maí og 1. og 8. júní 2021 (sjá nánar töflu hér fyrir neðan)
  • Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2 og 1/2 klukkukstund í senn frá kl. 19:30-22:00 alla dagana. 
  • Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!
  • Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:
  • Skilningur á ADHD og ólík einkenni
  • Algengir fylgikvillar
  • Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
  • Markmiðasetning
  • Félagsleg samskipti almennt
  • Vinna og nám
  • Fjármálastjórn
  • Heimilið
  • Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
  • Heilbrigt líferni
  • Markmið námskeiðsins:

Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðið verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

  • Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi.
  • Skipulag:
  1. tími þriðjudagur 18. maí kl. 19:30 - 22:00
  2. tími þriðjuudagur 25. maí kl. 19:30 - 22:00
  3. tími þriðjudagur 1. júní kl. 19:30 - 22:00
  4. tími þriðjudagur 8. júní kl. 19:30 - 22:00

Námskeiðsverð:

34.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna: SKRÁNING HÉR
39.000 kr fyrir aðra: SKRÁNING HÉR

  • Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.
  • Bendum einnig á aukanámskeið ÁFRAM STELPUR sem haldið verður í apríl nk. Skráning og nánari upplýsingar hér 
  • Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.
  • Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is
  • Verið velkomin á námskeið hjá ADHD samtökunum!