Fyrsti spjallfundur haustsins verður 18. ágúst næstkomandi- Hvað verður um ADHD'ið eftir 67 ára ?!

ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund um eldra fólk og ADHD, miðvikudaginn 18. ágúst nk. kl. 20:30. Fundurinn verður haldinn í fundarsal ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4.hæð og er ætlaður öllum sem vilja fræðast um ADHD og efri árin. Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur hefur veg og vanda að spjallfundinum og mun hún koma víða við. 

Við mælum með þessum opna fyrirlestri, það er aldrei að vita nema að uppgvötir skyndilega að þú sért með ADHD, eða foreldri þitt ?!

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður hægt að nálgast bæklinga samtakanna, bækur um ADHD og annað fræðsluefni.

Fundinum verður einnig streymt á lokað svæði skuldlausra félagsmanna ADHD samtakanna á Facebook, ADHD í beinni.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD samtakanna í Reykjavík eru haldnir á miðvikudagskvöldum, tvisvar sinnum í mánuði og má sjá dagskrána framundan hér: Spjallfundir ADHD samtakanna.

Skráðu þig á Facebook á viðburð spjallfundarins og fáðu áminningu. 

Ef þú vilt ganga í ADHD samtökin, er hægt að gera það hér. Ganga í ADHD samtökin.

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD. 

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!