Hvar er draumurinn? Opinn spjallfundur um svefn barna með ADHD

Opinn spjallfundur um svefn barna með ADHD.
Opinn spjallfundur um svefn barna með ADHD.

Hvar er draumurinn? ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um svefn barna með ADHD 5. febrúar nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV. hæð og er ætlaður aðstandendum barna með ADHD og öllu áhugafólki um betra líf með ADHD.

Börn með ADHD upplifa mjög oft erfiðleika með svefn. Ástæðurnar geta verið margskonar og úrræðin sömuleiðis og er reynsla fólks afar mismunandi og einstaklingsbundin. Lyf hafa einnig mismunandi áhrif á einstaklinga hvað þetta varðar. Margar leiðir er þó hægt að fara og verða þær helstu kynntar og ræddar á fundinum. Umsjón hefur Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og stjórnarkona í ADHD samtökunum.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bæklinga samtakannabækur um ADHD og annað fræðsluefni.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD samtakanna eru yfirleitt fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði og má sjá dagskrána framundan hér: Spjallfundir ADHD samtakanna.

Ef þú vilt ganga í ADHD samtökin, er hægt að gera það hér. Ganga í ADHD samtökin.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.