Samskipti foreldra og barna með ADHD - Spjallfundur á Akureyri

Opinn spjallfundur á Akureyri, 23. mars kl. 17:30
Opinn spjallfundur á Akureyri, 23. mars kl. 17:30

ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund um samskipti foreldra og barna með ADHD þann 23. mars nk. kl. 17:30. Fundurinn verður haldinn í í Grófinni, Hafnarstræti 95, Akureyri og er ætlaður foreldrum/forráðamönnum barna og öðrum aðstandendum fólks með ADHD og öllu öðru áhugafólki um uppbyggileg og gagnleg samskipti i uppeldi barna. Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur hefur veg og vanda að spjallfundinum og mun hún koma víða við. Í þessum fyrirlestri mun Sólveig meðal annars koma inn á óhlýðnikeðjuna, um samstöðu foreldra, umbunarkerfi, uppbyggileg samtöl og samskipti, hvernig við getum dregið fram góða hegðun og mikið meira.

Fundurinn verður haldinn þann 23. mars kl. 17:30 í Grófinni, Hafnarstræti 95

Sólveig hefur lengi starfað innan málaflokksins en hún starfaði fyrst sem skólasálfræðingur og síðar sálfræðingur á BUGL og tók þátt í að byggja upp þjónustu við börn með ADHD þar. Tók síðar við starfi forstöðumanns og sálfræðings á Stuðlum en þangað komu margir unglingar með ADHD. Sólveig hefur lengi sinnt fræðslu á vegum ADHD samtakanna og situr nú í stjórn þeirra. 

Við mælum með þessum opna fyrirlestri, það er aldrei að vita nema að þú fáir góðar uppeldishugmyndir í kjölfarið.

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður hægt að nálgast bæklinga samtakanna, bækur um ADHD og annað fræðsluefni. Einnig má finna rafrænar útgáfur þeirra hér 

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD Norðurland á Akureyri eru yfirleitt á þriðjudögum í hverjum mánuði og má sjá dagskrána framundan hér: Spjallfundir ADHD samtakanna.

ADHD Norðurland heldur úti Facebook síðu. Vertu með! Skráðu þig á Facebook viðburðinn og fáðu áminningu

Ef þú vilt ganga í ADHD samtökin, er hægt að gera það hér. Ganga í ADHD samtökin.

Við bendum líka á upptökur af nokkrum fræðslufundum ADHD samtakanna um ýmis ADHD málefn sem nálgast má hér.

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.