Samskipti foreldra og barna með ADHD - Spjallfundur í Reykjavík

Spjallfundur um samskipti foreldra og barna með ADHD
Spjallfundur um samskipti foreldra og barna með ADHD

ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund um samskipti foreldra og barna með ADHD miðvikudaginn 3. mars nk. kl. 20:30. Fundurinn verður haldinn í fundarsal ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4.hæð og er ætlaður foreldrum/forráðamönnum barna og öðrum aðstandendum fólks með ADHD og öllu öðru áhugafólki um uppbyggileg og gagnleg samskipti i uppeldi barna. Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur hefur veg og vanda að spjallfundinum og mun hún koma víða við. Í þessum fyrirlestri mun Sólveig meðal annars koma inn á óhlýðnikeðjuna, um samstöðu foreldra, umbunarkerfi, uppbyggileg samtöl og samskipti, hvernig við getum dregið fram góða hegðun og mikið meira.

Sólveig hefur lengi starfað innan málaflokksins en hún starfaði fyrst sem skólasálfræðingur og síðar sálfræðingur á BUGL og tók þátt í að byggja upp þjónustu við börn með ADHD þar. Tók síðar við starfi forstöðumanns og sálfræðings á Stuðlum en þangað komu margir unglingar með ADHD. Sólveig hefur lengi sinnt fræðslu á vegum ADHD samtakanna og situr nú í stjórn þeirra. 

Við mælum með þessum opna fyrirlestri, það er aldrei að vita nema að þú fáir góðar uppeldishugmyndir í kjölfarið!

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður hægt að nálgast bæklinga samtakanna, bækur um ADHD og annað fræðsluefni.

Fundinum verður einnig streymt á lokað svæði skuldlausra félagsmanna ADHD samtakanna á Facebook, ADHD í beinni.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD samtakanna í Reykjavík eru haldnir á miðvikudagskvöldum, tvisvar sinnum í mánuði og má sjá dagskrána framundan hér: Spjallfundir ADHD samtakanna.

Skráðu þig á Facebook á viðburð spjallfundarins og fáðu áminningu. 

Ef þú vilt ganga í ADHD samtökin, er hægt að gera það hér. Ganga í ADHD samtökin.

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD. 

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!