Sigurvegarar með ADHD - opinn spjallfundur

Sigurvegarar með ADHD - opinn spjallfundur í Reykjavík.
Sigurvegarar með ADHD - opinn spjallfundur í Reykjavík.

Sigurvegarar með ADHD. ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um uppbyggjandi leiðir fyrir fólk með ADHD sem vill ná árangri, miðvikudaginn 23. september nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV. hæð og er ætlaður fullorðnum með ADHD og öllu áhugafólki um betra líf með ADHD. 

Vegna COVID faraldursins verður sérstaklega gætt að sóttvörnum og fundinum verður einnig streymt á lokað svæði skuldlausra félagsmanna ADHD samtakanna á Facebook, ADHD í beinni.

Á spjallfundinum verður fjallað um uppbyggjandi leiðir fyrir fólk með ADHD, sem vill ná árangri í námi, starfi og lífinu sjálfu. Umsjón með fundinum hefur Jóna Kristín Gunnarsdóttir, kennari og stjónarkona í ADHD samtökunum sem skrifaði nýverið grein um sem vakti mikla athygli og hratt af stað samfélagsbylgju undir merkjunum #takkADHD og #takkADHDLyf. Greinina má finna hér: Mamma ertu að dópa mig? 

Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bæklinga samtakannabækur um ADHD og annað fræðsluefni. Við vekjum einnig athygli á upptökum af fræðslufundum frá vorinu 2020 sem nálgast nálgast hér og hlaðvarpi ADHD samtakanna, Lífið með ADHD.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD samtakanna eru yfirleitt fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði og má sjá dagskrána framundan hér: Spjallfundir ADHD samtakanna.

Ef þú vilt ganga í ADHD samtökin, er hægt að gera það hér. Ganga í ADHD samtökin.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.