Taktu stjórnina og áfram stelpur - Fræðslunámskeið fyrir fullorðna með ADHD

Skráning er hafin á hið sívinsæla fræðslunámskeið ADHD samtakanna - Taktu stjórnina!

Námskeiðið verður haldið á miðvikudögunum 10., 17., 24. og 31. janúar. Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2 og 1/2 klukkukstund í senn frá kl. 13:30 - 16:00 alla dagana.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!

Markmið námskeiðsins:

  • Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðið verður að haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi.

Fyrir frekari upplýsingar og til að skrá sig smellið hér

 

Einnig opið fyrir skráningu á hið vinsæla fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið – Áfram stelpur!

Námskeiðið stendur í 9 klukkustundir - þrjú skipti, 3 klukkustundir í senn fimmtudagana 11. - 18. og 25. janúar kl:10.00-13:00

Markmið námskeiðs:

  • Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Námskeiðið verður í húsnæði Lífsgæðasetursins í St. Jósefsspítala. Leiðbeinandi er Sigrún Jónsdóttir, ADHD og einhverfu markþjálfi.

Fyrir frekari upplýsingar og til að skrá sig smellið hér

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að skrá sig hér

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is