Hér má sjá nýja umsögn ADHD samtakanna um reglugerðardrögin sem og tillögur samtakanna frá árinu 2023.
Undanfarin hálft sjöunda ár, allt frá gildistöku nýrra umferðarlaga árið 2020, hefur fólk með ADHD og aðrir viðkvæmir hópar sem nota ýmis lyf samhvæmt ávísunum lækna, búið við réttaróöryggi vegma laganna og framkvæmd þeirra. Tugir einstaklinga hafa orðið fyrir verulegum óþægindum vegna þessa, fjárhagstjóni og jafnvel misst ökuréttindin af ósekju. Helsu ástæður þessa eru vankantar á Umferðarlögum nr. 77/2019 og ekki síður skortur á reglugerð varðandi framkvæmd laganna.
ADHD samtökin hafa lagt í mikla vinnu vegna þessa óréttlætis og á grundvelli ítarlegrar rannsóknar og lögfræðiálits, sendu samtökin bréf til allra alþingismanna og ráðherra í september 2023 með ákalli um breytingar og formlegum tillögum í þeim efnum. Reglulega hefur verið minnt á tillögur samtakanna æ síðan í samskiptum við ráðuneyti umferðarmála, nú innviðaráðuneytið.
Nú tæpum þremur árum síðar hefur innviðaráðuneytið sent frá sér reglugerðradrög til umsagnar, að hluta í samræmi við ábendingar ADHD samtakanna. Um er að ræða drög að reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja, mál nr. S-92/2026 í samráðsgátt stjórnvalda.
ADHD samtökin fagna að sjálfsögðu að loks sé einhver hreyfing komin á málið, en benda jafnframt, á í formlegri umsögn sinni um drögin, að þar sé alls ekki gengið nægilega langt. Umrædd reglugerð leysi einungis hluta vandans, sem umferðarlögin er tóku gildi 2020 ollu fólki með ADHD og fleirum. Taka verði á fyrrnefndu óréttlæti og réttaróöryggi heilstætt og án tafa.
Hér má sjá nýja umsögn ADHD samtakanna um reglugerðardrögin sem og tillögur samtakanna frá árinu 2023.
ADHD samtökin skora á innviðaráðherra, alþingismenn og réttarvörslukerfið að bregðast við án tafa. Skaðin sem óvönduð lagasetning, ósanngjörn framkvæmd og hægagangur löggjafans og viðeigandi ráðuneyta í að bregðast við skýrum og réttmætum ábendingum ADHD samtakanna er óásættanlegur með öllu.