Aðalfundur ADHD samtakanna

Boðað er til aðalfundar ADHD samtakanna, fimmtudaginn 29. apríl kl. 20:00. 

Dagskrá verður í samræmi við lög samtakanna

  1. Félagsstjórn gerir grein fyrir störfum samtakanna á liðnu starfsári.
  2. Félagsstjórn leggur fram endurskoðaða reikninga samtakanna fyrir liðið ár til samþykktar. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.
  3. Lagabreytingar.
  4. Kosning stjórnar.
  5. Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna til eins árs í senn.
  6. Ákvörðun félagsgjalda.
  7. Önnur mál.

Allir fullgildir félagsmenn ADHD samtakanna á aðalfundardegi geta mætt og tekið þátt í aðalfundarstörfum. Hægt er að ganga í samtökin hér.