Áfram stelpur I

Skráning er hafin á fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna – Áfram stelpur!

Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2.5 klukkustundir í senn 8. febrúar til 1. mars. 

Markmið námskeiðs:

Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd.  Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Námskeiðið verður í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is