ADHD og fjármál - fjarnámskeið

Fjarnámskeið - ADHD og fjármál

Stutt fjarnámskeið með aðferðum sem virka fyrir fólk með ADHD. 

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu áskoranir varðandi ADHD og fjármála yfirsýn. Við förum yfir hvernig við getum byggt upp betra samband við fjármálin okkar, vinnum með hvatvísina og segjum bless við skömmina sem fylgir oft óreiðu í fjármálum. Við lærum mismunandi aðferðir til að setja okkur fjárhagsleg markmið og standa við þau og hvar við getum sparað. Við förum yfir hvernig er hægt að halda heimilisbókhald á einfaldan og skemmtilegan hátt og hvernig við búum okkur til ADHD vænar fjármála rútínur. Við einbeitum okkur betur að því að byggja upp jákvæðar tilfinningar fyrir fjármálin okkar og hvað það kostar okkur í raun og veru að lifa. Þú færð verkfæri eftir námskeiðið til þess að vera betur tengd við peningana þína til að stjórna þeim í stað þess að þeir stjórni þér.

Leiðbeinandi á námskeiðinu eru Valdís Hrönn Berg, fjárhagsmarkþjálfi.

Námskeiðið fer fram í gegnum Zoom, laugardagana 22. og 29. apríl næstkomandi milli 10:00 og 12:00 báða dagana.

 

NÁMSKEIÐSVERÐ:

29.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna: SKRÁNING HÉR

34.000 kr. fyrir aðra: SKRÁNING HÉR

 

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is