Fræðslufundur Suðurnes - Úrræði og aðstoð sveitarfélaganna

Á fundinum munu fulltrúar frá skrifstofu menntasviðs Reykjanesbæjar og fræðsluþjónustu Suðurnesjabæjar fjalla um mikilvægi samvinnu heimilis og skóla í tengslum við börn með ADHD og miðla af reynslu sinni um árangursríkar aðferðir. Einnig verður boðið upp á umræður. Gengið inn um aðalinngang Akurskóla Tjarnabraut 5. 260 Reykjanesbæ. Hægt er að leggja bílum á bílastæði við íþróttahús, hægra megin við skólann. Fundurinn er næstkomandi fimmtudag, 26. janúar klukkan 20:00.

Allir velkomnir, félagsmenn sem og aðrir. Heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt. Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum.
 
Hægt er að skrá sig á viðburðinn á fb til að fá áminningu: https://fb.me/e/2uz05DRN
 
 
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.