Rafíþróttir stelpur og strákar 10-13 ára

ADHD samtökin og Rafíþróttadeild FH standa fyrir stuttu námskeiði í Rafíþróttum fyrir 10-13 ára börn (stelpur og strákar)  með ADHD. Æfingatímabilið er frá 12. júní - 22. júní, átta skipti alls. Æfingar fara fram fjórum sinnum í viku og eru æfingarnar í 90 mínútur í senn. Æfingar eru frá kl. 17:30 - 19:00. Á æfingum hjá Rafíþróttadeild FH er lögð áhersla á jákvæða tölvuleikjaspilun, líkamlega og andlega heilsu og liðsheild. Iðkendur hita upp og stunda líkamlegar hreyfingu, læra heilbrigða spilunarhætti og vinna saman sem lið. Fylkir sér fyrir öllum æfingatækjum, leikjum og aðgöngum en þátttakendum er velkomið að spila aðra leiki eða skrá sig inn á sína aðganga. Hámark eru 10 í hverjum æfingahóp. Námskeiðin fara fram í rafíþrótta aðstöðu FH, Reykjavíkurvegur 50, húsnæði Nú skólans.

Við hvetjum forráðamenn til þess að vera meðvitaðir um aldursviðmið PEGI. Skráning á æfingar er á ábyrgð forráðamanna og við skráningu er forráðamaður að senda samþykki sitt við því að iðkandinn spili þann leik sem hann hefur verið skráð á æfingar fyrir. 

Hægt er að ganga í ADHD samtökin hér