Sigurvegarar með ADHD - Spjallfundur í Reykjavík

Sigurvegarar með ADHD - Leiðir til að ná árangri

Sigurvegarar með ADHD. ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um uppbyggjandi leiðir fyrir fólk með ADHD sem vill ná árangri, miðvikudaginn 5. maí nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - 4. hæð og er ætlaður fullorðnum með ADHD og öllu áhugafólki um betra líf með ADHD. 

Vegna COVID faraldursins verður sérstaklega gætt að sóttvörnum og fundinum verður einnig streymt á lokað svæði skuldlausra félagsmanna ADHD samtakanna á Facebook, ADHD í beinni.

Á spjallfundinum verður fjallað um uppbyggjandi leiðir fyrir fólk með ADHD, sem vill ná árangri í námi, starfi og lífinu sjálfu. Umsjón með fundinum hefur Jóna Kristín Gunnarsdóttir, kennari og stjónarkona í ADHD samtökunum sem skrifaði nýverið grein sem vakti mikla athygli og hratt af stað samfélagsbylgju undir merkjunum #takkADHD og #takkADHDLyf. Greinina má finna hér: Mamma ertu að dópa mig? 

 

ADHD samtökin halda opinn spjallfund í Reykjavík að Háaleitisbraut 13, 4. hæð um Sigurvegara með ADHD, miðvikudaginn 5. maí kl. 20:30. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. 

  • Fundinum verður einnig streymt á lokað svæði skuldlausra félagsmanna ADHD samtakanna á Facebook, ADHD í beinni.
 
 

Mætum og bjóðum vinum með og byggjum upp öflugt ADHD samfélag á Íslandi

Skráðu þig á Facebook viðburð spjallfundanna og fáðu áminningu.

Yfirlit yfir spjallfundi má sjá hér

Við bendum líka á upptökur af nokkrum fræðslufundum ADHD samtakanna um ýmis ADHD málefn sem nálgast má hér.

Gerast félagsmaður. Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi síðu:
https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.